Þýskaland, í hjarta Evrópu, hefur á seinni árum átt sívaxandi vinsældum að fagna sem áfangastaður ferðamanna. Þetta sést best í ljósi þess síaukna fjölda viðskipta- og ferðamanna sem árlega sækja landið heim frá öllum heimshornum.
Heimasíða okkar gegnir því hlutverki að miðla upplýsingum um og vekja athygli á þeim fjölmörgu möguleikum sem Þýskaland hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt sækja heim iðandi líf stórborganna, njóta lífsins við hafið, eða í Ölpum Bæjaralands. Leita á vit alþjóðlegra og Þýskra matargerðamanna, fara á knattspyrnuleiki og aðra stórbrotna íþróttaviðburði eða hlusta á tónleika með klassískri eða nútímatónlist, er von okkar sú að upplýsingarnar sem hér er að finna gefi svör við spurningum þínum og auki löngun þína á að eyða fríinu í Þýskalandi.
Allar helstu ferðaskrifstofur á Íslandi, sem og Flugleiðir bjóða upp á fjölda ferðamöguleika til Þýskalands.
Hlökkum til að taka á móti þér í hjarta Evrópu.
Enn sem komið er er heimasíða okkar ekki á Íslensku. Leitið því frekari upplýsinga á Ensku, Þýsku eða Skandinavísku síðunum.


